Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna

Facebook
Twitter

Undanúrslit 1. deildar karla og kvenna á Íslandsmóti liða fara fram mánudaginn 22. apríl og þriðjudaginn 23. apríl. Í undanúrslitunum mætast ÍR-KLS og ÍA-W, ÍR-PLS og ÍA í 1. deild karla og KFR-Valkyrjur og ÍR-Buff, ÍR-TT og KFR-Afturgöngurnar í 1. deild kvenna.

Mánudaginn 22. apríl fara allir leikirnir fram í Egilshöllinni og hefjast kl. 19:00:
ÍR-KLS – ÍA-W, brautir 3 – 4, olíuburður Björnen 42 fet
ÍR-PLS – ÍA, brautir 5 – 6, olíuburður Raven 38 fet
KFR-Valkyrjur – ÍR-Buff, brautir 7 – 8, olíuburður Björnen 42 fet
ÍR-TT – KFR-Afturgöngurnar, brautir 9 – 10, olíuburður Björnen 42 fet

Sjá brautaskipan í undanúrslitum

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Nýjustu fréttirnar