Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf 2013

Facebook
Twitter

Íslandsmót einstaklinga í keilu með forgjöf verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Keiluhöllinni í Egilshöll dagana 2. – 5. mars n.k.

Forkeppnin fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Egilshöll laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. mars og hefst kl. 10:00 báða dagana. Spilaðir eru 8 leikir í forkeppninni, 4 leikir í hvoru húsi. Keppni í milliriðili fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll mánudaginn 4. mars og hefst keppni kl. 19:00. Keppni í undanúrslitum fer fram í í Keiluhöllinni Egilshöll þriðjudaginn 5. mars og hefst kl. 19:00 og keppni í úrslitum fer fram strax að loknum undanúrslitunum. Sjá nánar í auglýsingu

Sjá reglugerð um Íslandsmót einstaklinga. Olíuburður í mótinu er 38 fet Räven

Skráning er á netinu og lýkur fimmtudaginn 28. febrúar kl. 22:00

Snæfríður Telma Jónsson ÍR og Kristján Þórðarson ÍA voru Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu með forgjöf 2012.

 

Nýjustu fréttirnar