Meistarakeppni ungmenna 4. umferð

Facebook
Twitter

Fjórða umferðin í Meistarakeppni ungmenna fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 9. febrúar 2013 og hefst keppni kl. 9:00.

Í mótinu hafa keppnisrétt öll börn og ungmenni, 20 ára og yngri sem æfa hjá keilufélögunum og er skráning í mótinu hjá þjálfurum félaganna. Sjá stöðuna í Meistarakeppni ungmenna

Þekkið þið drengina á myndinni? Þeir eru aðeins eldri í dag og ætla allir að taka þátt í Íslandsmóti einstaklinga um næstu helgi.

Keppni í Meistarakeppni ungmenna í keilu fer fram u.þ.b. mánaðarlega yfir veturinn, sjá leikdaga í dagskrá og keppt er í fjórum aldursflokkum:
1. flokkur 18 – 19 – 20 ára
2. flokkur 15 – 16 – 17 ára
3. flokkur 12 – 13 – 14 ára
4. flokkur 9 – 10 – 11 ára

Raðað er í sæti eftir heildarskori í hverjum flokki í hverri umferð. Stig eru gefin fyrir öll sæti í hvert skipti. Stigagjöf er eftirfarandi:
1. sæti hlýtur 12 stig
2. sæti hlýtur 10 stig
3. sæti hlýtur 8 stig
4. sæti hlýtur 7 stig
5. sæti hlýtur 6 stig
6. sæti hlýtur 5 stig
7. sæti hlýtur 4 stig
8. sæti hlýtur 3 stig
9. sæti hlýtur 2 stig
10. sæti og neðar hlýtur 1 stig

Olíuburðurinn notaður er í Meistarakeppni ungmenna heitir Sofia 37 fet. Sjá nánar í regluferð um Meistarakeppni ungmenna

Nýjustu fréttirnar