Íslandsmót einstaklinga 2013

Facebook
Twitter

Keppni á Íslandsmóti einstaklinga í keilu 2013 fer fram dagana 2. – 5. febrúar n.k. í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Egilshöll.

Í forkeppninni þarf að spila bæði í Öskjuhlíð og Egilshöll, en keppni í milliriðli, undanúrslitum og úrslitum fer fram í Egilshöllinni. Bæði verður keppt í stuttum olíuburði 36 fet Järven og löngum olíuburði 44 fet Älgen.

Í forkeppnninni eru spilaðir 6 leikir í stuttum olíuburði í Öskjuhlíð og 6 leikir í löngum olíuburði í Egilshöll og við skráningu í mótið þarf að velja í hvoru húsinu verður byrjað að spila. Í keppni í milliriðli, undanúrslitum og úrslitum verður keppt í Egilshöllinni og spilað á löngum olíuburði á vinstri braut og stuttum olíuburði á hægri braut.Í milliriðli spila efstu 16 karlarnir og efstu 12 konurnar 6 leiki og komast 8 efstu karlarnir og efstu 8 konurnar áfram í undanúrslit þar sem spiluð er einföld umferð allir við alla. Efstu 2 keppendurnir í hvorum flokki keppa síðan til úrslita um titilinn Íslandsmeistari einstakling. Skráning er á netinu  og lýkur fimmtudaginn 31. janúar n.k. Sjá nánar í auglýsingu og reglugerð um Íslandsmót einstaklinga

Hafþór Harðarson og Karen Rut Sigurðardóttir úr ÍR eru Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu 2012. Sjá upplýsingar um Íslandsmeistara einstaklinga í keilu

Nýjustu fréttirnar