Deildarbikar liða 3. umferð

Facebook
Twitter

Þriðja umferð Deildarbikars liða fer fram í kvöld, þriðjudaginn 18. desember. A og C riðlar keppa í Keiluhöllinni Egilshöll en B riðill í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Olíuburður í Deildarbikarnum er Weber Cup 2007 41 fet. Sjá nánar deildarbikar liða

ÍR-KLS hefur tekið efsta sætið í A riðli með 16 stig, tveimur stigum meira en KR-B sem er í 2. sæti. ÍR-PLS heldur 3. sætinu með 12 stig og ÍR-TT er í 4. sæti með 10 stig.

Í B riðli heldur ÍA toppsætinu og er nú með 18 stig. ÍA-W er í 2. sæti með 16 stig, en ÍR-Buff er komið í 3. sætið með 8 stig, jafn mörg stig og ÍR-NAS sem er í 4. sæti.

Í C riðli hafa orðið sætaskipti á toppnum KR-A eru efstir með 18 stig, tveimur stigum meira en KFR-Lærlingar. KFR-Afturgöngurnar koma í 3. sæti með 12 stig og ÍR-L er í 4. sæti með 8 stig.

Sjá nánar deildarbikar liða

Nýjustu fréttirnar