Sjóvá mótið – 32 manna úrslit karla

Facebook
Twitter

Keppni á Sjóvá mótinu, bikarkeppni einstaklinga í keilu fer fram í Egilshöll dagana 12. – 18. nóvember 2012.

Í kvöld, föstudag 16. nóvember var keppt í 32 manna úrslitum karla. Helstu tíðindi kvöldsins eru þau að Arnar Sæbergsson ÍR spilaði sinn annan 300 leik og setti einnig glæsilegt Íslandsmet í þremur leikjum þegar hann spilaði 822 seríu. Sjá úrslit leikja í 32 manna úrslitum karla.

Á morgun laugardag, 17. nóvember hefst keppni í 16 manna úrslitum karla kl. 10:00 og 16 manna úrslitum kvenna kl. 11:00. Sjá leiki í 16 manna úrslitum karla og 16 manna úrslitum kvenna.

Á sunnudag 18. nóvember verður síðan keppt í 8 manna, undanúrslitum og úrslitum karla og kvenna og hefst keppni í 8 manna úrslitum kl. 9:00. Þátttökugjald fyrir hverja umferð er 2.500 kr. þar til komið er að undanúrslitum.Olíuburður í mótinu er Kegel High Street 44 fet. Sjá einnig breytta auglýsingu og fylgist með á heimasíðu Keiludeildar ÍR

Mótanefnd Keiludeildar ÍR

Skor úr fyrri umferðum:
128 manna úrslit karla
64 manna úrslit karla
32 manna úrslit karla
32 manna úrslit kvenna

Dagskráin mótsins er:
Mánudagur 12. nóvember kl.19:00         128 manna úrslit karla
Þriðjudagur 13. nóvember kl.19:00         128 manna úrslit karla
Miðvikudagur 14. nóvember kl. 19:00      64 manna úrslit kvenna
Fimmtudagur 15. nóvember kl. 17:30      32 manna úrslit kvenna
Fimmtudagur 15. nóvember kl. 19:00      64 manna úrslit karla
Föstudagur 16. nóvember kl. 18:00        32 manna úrslit karla
Laugardagur 17. nóvember kl. 10:00      16 manna úrslit karla
Laugardagur 17. nóvember kl. 11:00      16 manna úrslit kvenna
Sunnudagur 18. nóvember kl. 9:00          8 manna úrslit karla og kvenna
Sunnudagur 18. nóvember kl. 10:00        4 manna úrslit karla og kvenna
Sunnudagur 18. nóvember kl. 11:00         Úrslit karla og kvenna
 

 

Nýjustu fréttirnar