Hjóna- og paramót KFR

Facebook
Twitter

 KFR ætlar að gera aðra tilraun með hjóna- og paramótið og er næsta umferð sunnudaginn 4. nóvember og hefst klukkan 19:00.  Það kostar 5.000 kr. í mótið. Keppnin fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð, leikið verður áfram með og án forgjafar,  nú er ekki nauðsynlegt að parið sé gift eða í sambúð. Til þess að eiga kost á að komast í úrslit þarf enn að skila a.m.k. þremur umferðum. Önnur nýbreytni er að skráning verður á netinu og lýkur á hádegi á föstudegi, 2. nóvember, fyrir mót, miðað er við að lágmark 8 pör þurfi til að mótið verði spilað. Þá hefur stjórn ákveðið að fella niður veitingarnar að lokinni keppni en hvetur samt pörin til að setjast niður yfir kaffibolla eftir mót.

Stjórn KFR

Nýjustu fréttirnar