Deildarbikar liða 1. umferð

Facebook
Twitter

Fyrsta umferð Deildarbikars liða fór fram þriðjudaginn 9. október. KR-B er í efsta sæti A riðils með 8 stig, ÍR-KLS er í öðru sæti einnig með 8 stig og ÍR-PLS er í þriðja sæti með 6 stig. Í B riðli er ÍA á toppnum með fullt hús stiga eða 10 stig. ÍA-W er í öðru sæti með 8 stig og ÍR-NAS er í þriðja sæti með 4 stig. Í C riðli eru KFR-Lærlingar efstir með 10 stig og hafa einnig unnið alla sína leiki. KR-A er í öðru sæti með 8 stig og KFR-Afturgöngurnar eru í þriðja sæti með 6 stig. Sjá nánar

Í mótinu taka að þessu sinni þátt 18 deildarlið, 7 úr ÍR, 3 úr KFR, 3 úr ÍFH, 3 úr KR og 2 úr ÍA. Keppt er í þremur riðlum sem spila til skiptis í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Egilshöll, alls 5. umferðir.

Skipting liðanna í riðla er eftirfarandi:

A-riðill: ÍR-BK, ÍR-TT, ÍR-KLS, ÍR-PLS, KR-C, KR-B.  Sjá dagskrá A riðils

B-riðill: ÍR-Buff, ÍFH-DK, ÍA-W, ÍA, ÍFH-D, ÍR-NAS. Sjá dagskrá B riðils

C-riðill: KFR-Afturgöngurnar, KFR-Lærlingar, ÍR-L, KR-A, ÍFH-A, KFR-Þröstur. Sjá dagskrá C riðils.

Nýjustu fréttirnar