Keppni á Íslandsmóti liða 2012 – 2013

Facebook
Twitter

Keppni á Íslandsmóti liða á þessu keppnistímabili hófst á leik KFA-ÍA og ÍR-N í 1. umferð 1. deildar kvenna sem fram fór í Keilusalnum á Akranesi í gær. Fyrstu deildarleikirnir í Egilshöllinni hefjast síðan kl. 19:00 í kvöld, mánudaginn 17. september, en þar eigast við KFR-Skutlurnar og KFR-Afturgöngurnar í 1. deild kvenna og KFR-B og ÍR-A í A-riðli 2. deild karla.

 

Leik ÍR-Buff og ÍR-TT, sem fara átti fram í Egilshöll í kvöld, hefur verið frestað að beiðni liðsmanna ÍR-Buff.

Á sama tíma keppa í Öskjuhlíðinni lið ÍFH-DK og KFR-Valkyrjur og ÍR-BK og ÍR-KK í 1. deild kvenna og KFR-KP-G og ÍR-Keila.is og ÍR-Naddóður og ÍFH-A í A-riðli 2. deildar karla.

Á morgun, þriðjudaginn 18. september kl. 19:00 keppa í Egilshöllinni KFR-JP-kast  og KFA-ÍA-W, KFR-Lærlingar og KR-C, KFR-Stormsveitin og KFA-ÍA, KR-A og ÍR-PLS sem öll er í 1. deild karla. Og á sama tíma keppa í Öskjuhlíðinni ÍR-L og ÍR-KLS í 1. deild karla og KR-B og KFR-Þrestir, ÍR-Blikk og ÍR-G, ÍR-NAS og KFA-ÍA-B og ÍR-T í B. riðli 2. deildar karla.
 

Nýjustu fréttirnar