Góð mæting á námskeið

Facebook
Twitter

Um síðustu helgi bauð Keiluhöllin keilurum upp á stutt námskeið hjá Peter Somoff frá Storm keiluvöruframleiðandanum. Góð mæting var á námskeiðin en þau sóttu á milli 50 og 60 keilara og einnig voru margir sem hlýddu á fyrirlestur Peters á Rúbín á mánudaginn.

Peter Somoff, sem starfar nú hjá Storm, er fyrrum atvinnumaður í keilu og hefur unnið fjölda titla og fengið viðurkenningar í keilu. Hann hefur m.a. spilað 300 leiki 16 sinnum á ferlinum og 8 seríur yfir 800. Einnig rak hann fjölda keiluvörubúða (Proshop) og hefur mikla reynslu á því sviði. Peter kom einnig hingað til lands til að veita ráðgjöf við uppsetningu á keiluvörubúðinni í Egilshöllinni sem Hafþór Harðarson mun sjá um og verður opnuð á næstunni.

Nýjustu fréttirnar