Þá hafa stelpurnar lokið fyrri riðlinum í liðakeppninni. Þetta eru stelpurnar sem byrjuðu á settinu eftir hádegi, en Úkraníustúlkurnar spila með þeim íslensku í dag og á morgun. Hafdís Pála spilaði 507 og Katrín Fjóla 453. Á morgun byrja strákarnir klukkan 9 og stelpurnar eftir hádegi. Úrslitin verða svo spiluð í seinni partinn á morgun.