|
Fréttir
Laugardagur, 25. Júlí 2009 kl. 18:55 | HIJ
WWC í Las VegasVið heilsum héðan frá Vegas og það fer mjög vel um okkur hér, við höfum verið að skoða okkur um og versla smá og liggja í sólbaði( það er rosalega heitt). Hótelið er mjög glæsilegt, risaspilavíti, 7 veitingastaðir, 8 bíósalir og 72 brauta keilusalur(þvímiður er ekki kept í honum heldur í 20 km. fjarlægð). Við förum á æfingu í fyrramálið og þá fer þetta nu alveg að byrja. ég mun senda pistil frá mér daglega frá og með þessum degi. það biðja allir að heilsa Hörður Ingi Las Vegas |