Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Þri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá næsta mánuðinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttir

Miðvikudagur, 4. Mars 2009 kl. 00:29 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga

Íslandsmóti einstaklinga lauk í kvöld með sigri Sigfríðar (Lísu) Sigurðardóttur KFR og Steinþórs Geirdal Jóhannssonar ÍR.   Milliriðillinn var mjög spennandi, hjá konum var á endanum þannig að Magna ÝR Hjálmtýsdóttir KFR var efst og Lísa og Guðný Gunnarsdóttir ÍR jafnar í 2 og 3 sæti, þurfti þá að gá hvor hafði spilað hærri síðasta leikinn og var það Lísa og spilaði hún 2 pinnum hærri leik en Guðný þannig að Lísa og Magna fóru í úrslitaleikinn.  Hjá körlum var ekki minni spenna, fyrir síðasta leikinn var Róbert Dan Sigurðsson ÍR efstur og átti 22 pinna á Jón Inga Ragnarsson ÍR sem átti 1 pinna á Steina.  Róbert spilaði fínan leik og var því öruggur í úrslit en Steini og Jón Ingi áttu innbyrðis viðureign og var hörku leikur sem endaði með sigri Steina.

Í gær setti Arnar Davíð Jónsson 2 Íslandsmet í flokki 15-16 ára. Í 5 leikjum 1069 og 6 leikjum 1271. 

Til hamingju allir með frábæran árangur